Við fórum með Bjarka Þór í leikskólann hans í morgunn að mála piparkökur :) (Þessi mynd er reyndar tekin á símann hans Birgis, þar sem myndavélin okkar er ónýt)
Í gamla daga þegar ég var lítil stelpa, þá var eitt af því yndislegasta sem ég gerði, að sitja í fanginu á ömmu í Skeiðó á meðan hún ruggaði mér og söng fyrir mig úr Vísnabókinni. Góðar minningar gleymast aldrei og það er alltaf gott að ylja sér við þær.
Í dag ætla ég að hafa smá getraun fyrir ykkur :) Þið sem getið giskað á hvað þetta er, komist í pott sem ég dreg svo úr í næstu viku, og sá heppni fær sendann smá pakka. Þetta er hlutur sem er inni á flestum íslenskum heimilum.....
Langalangamma mín átti heima í þessu húsi og amma mín var mikið hjá henni þá, nú er það á Árbæjarsafni og þess vegna er búið að gera svona styttu eftir því.
Ég heiti Fríða og er heimavinnandi húsmóðir. Maðurinn minn heitir Birgir og er vélvirki (Járnsmiður hét það víst í gamla daga) Við höfum búið saman í 7 ár. Og saman eigum við tvo yndislega syni, annar þeirra verður 3 ára í sumar en sá yngri á líka afmæli í sumar en þá verður hann 1 árs.