Jæja, ég er komin aftur, en þar sem myndavélin mín er NÁNAST ónýt, þá ætla ég nú ekki að lofa ykkur því að ég bloggi á HVERJUM degi, en ég reyni eins og ég get :)
Í dag bakaði ég súkkulaðisnúða, og þar sem ég á ekki hrærivél (bara handþeytara) þá þurfti ég að hnoða deigið upp á gamla mátann. Eins og amma heitin gerði svo oft :)
Ég heiti Fríða og er heimavinnandi húsmóðir. Maðurinn minn heitir Birgir og er vélvirki (Járnsmiður hét það víst í gamla daga) Við höfum búið saman í 7 ár. Og saman eigum við tvo yndislega syni, annar þeirra verður 3 ára í sumar en sá yngri á líka afmæli í sumar en þá verður hann 1 árs.